Alveg á mörkunum.......

.....að ég nenni að blogga en ætla að láta mig hafa það.

Já ég er hætt að vinna og tek því bara rólega.  Nú styttist verulega í litla krílið....er komin 33 vikur og ég mun ekki ganga með lengur en 39 vikur.  Þannig að það er max 6 vikur í að krílið komi í heiminn en það kæmi mér ekkert á óvart ef ég yrði sett á stað á 38 viku.....en það kemur í ljós.......5-6 vikur eftir InLove  Það gengur mjög vel, reyndar hefur blóðþrýstingurinn verið að stríða mér og þess vegna var ég látin hætta að vinna.  Ég er nú aðeins að hressast, hef meiri orku ....sem betur fer.  Það gengur vel að undirbúa fyrir komu krílisins, búin að þvo flest allt, búin að þrífa rimlarúmið sem var í láni og kom það bara ok undan skítnum......ekkert meira um það Sick Jóhanna gaf mér dýnu, sérsniðna úr RB og það vildi svo vel til að hún virðist ætla að smella passa......ég varð nefnilega að henda dýnunni sem var í rúminu sökum þess hve drullug hún var......er ekki búin að setja rúmið saman....er ennþá að gera það upp við mig hvort að ég eigi að gera það áður en barnið kemur.....????  Vaggan er ekki komin en vonandi næ ég að redda fari fyrir hana frá króknum.....annars kemur mamma með hana í des.....vill samt helst frá hana aðeins fyrr svona ef mútta kæmist ekki í des t.d. vegna veðurs.  Þannig að ef þú ert á ferðinni í Skagafirði endilega láttu mig vita.

Á laugardaginn var giftingin hjá Sibbu og Friðgeir.  Vá hvað tíminn er fljótur að líða......ákváðu þetta með 10 mánaða fyrirvara og svo bara komið að því og búið :)  Þetta var mjög fallegt brúðkaup.  Allt svo glæsilegt og gekk svo vel.  Kjólinn , brúðhjónin, kirkjan og maturinn ......allt var þetta glæsilegt og frábært.  Presturinn alveg frábær......kom með ótrúlega skemmtileg komment...mikið hlegið Grin  Innilega til hamingju Sibba okkar og Friðgeir.....og Auðvitað Helga Jóna.  Njótið hveitibrauðsdagana og við sjáumst vonandi fljótlega eftir þá.

Eftir brúðkaupið var farið í afmæli til Jórunnar, hún varð 35 ára þann 21. okt.  Þar var margt um manninn og mikið stuð.   Við stoppuðum ekki lengi .......enda búin á því eftir daginn.  En það var gaman að kíkja.  Innileg til hamingju Jórunn ......Smile

Af Aron Inga er allt gott að frétta.  Honum gengur vel í skólanum......miklar framfarir í lestri og svo virðist stærðfræðin ætla að ligga vel hjá honum.  Ohhh ég er svo stolt af honum og þó svo að ég segja sjálf frá þá er þetta einstaklega góður strákur og fæ ég mikið að heyra það frá fólki....m.a. starfsfólki skólans.  Hann er svo vel uppalinn.......hehehe.....InLove

Ég ætlaði nú ekki að tala um kreppuna .....en stundum koma tímar þar sem að manni langar bara að grenja......já maður er að heyra alveg ótrúlegar sögur af fjölskyldum sem að lenda illa í þessu öllu saman og þar er oftast um að ræða uppsagnir og fólk verður atvinnulaust Blush  Sorglegt, sorglegt.......  en ég reyni að láta þetta ekki hafa of mikil áhrif á mig vegna þess að ég get ekkert gert við þessu öllu saman og ef ég ætla að fara að pirra mig á þessu alla daga , þá bitnar það bara mest á mér og mínum nánustu.  Því verður maður bara að vera bjartsýn og horfa til framtíðar........er það ekki???

jæja ætla að láta þetta nægja núna........

kveðja

Helga Hrönn


Mæðraskoðun + vaxtarsónar

Jæja fór í mæðraskoðun , vaxtarsónar og til sykursýkislæknis í morgun.  Þetta gekk allt saman vel. 

Vaxtarsónarinn kom mjög vel út.  Krílið í eðlilegri stærð og lítur allt saman mjög vel út.  OOOhhhh ég fékk enga mynd núna en mun biðja um næst.....Grin

Í mæðraskoðuninni mældis blóðþrýstingurinn í hærri kantinum.  Töluverð bjúgmyndun er líka, mikil þreyta og orkuleysi og í ljós þessa var ákveðið að minnka vinnuna mína.  Reyndar var mér boðið að hætta alveg en ég vildi prófa að minnka við mig fyrst.  Því verð ég í 50% vinnu núna og verður það endurskoðað eftir 1/2 mán.  

Sykursýkislæknirinn minn mjög ánægð með tölurnar mínar og hafði ekkert út að þær að setja.  Ég þakka dælunni fyrir hvað það gengur vel, reyndar gekk mér mjög vel þegar ég gekk með Aron Inga, en ég var líka svöng alla meðgönguna hans.  Einnig lá ég inni allt í allt rúmlega 5 vikur.....en ekkert búið að leggja mig inn núna.......7.9.13.....ætli efnahagsástandi spili þar inn í......nei held ekki!  

Vá aldrei hélt ég að ég mundi upplifa það að finnast gaman að stíga á vigt.....en mikið er það "gaman" núna.  Ég var búin að þyngjast um 1.8 kg síðan í júní en í dag þegar ég fór var ég búin að léttast um 500 gr........og ég er ekki í neinni megrun.  Þetta þakka ég þessari yndislegu dælu Grin  Krílið er 1.670 gr núna.....en þá á eftir að telja inn í legvatn , fylgju og allt heila klabbi......sem sagt ég er sjálf að léttast.  Man þegar ég fór í fyrstu mæðraskoðuninna og þar var sagt við mig að ég mætti þyngjast um ca. 6 kg......ég varð orðlaus og hugsaði með mér "shit...hvernig í ósköpunum á ég fara að því?..... en sennilega næ ég því.  Hef ekki þurft að fórna miklu, hef getað leyft mér að "svindla" einstöku sinnum án þess að sykur hækki mikið........já þetta hefur farið fram úr mínum björtustu vonum.....aldrei bjóst ég við að ég mundi sætta mig við þessa dælu ...hvað þá að ég er mun sáttar við sjúkdóminn núna....hef aldrei fundið það áður.  Í dag eru 20 ár síðan ég greindist.....eða síðan ég varð fárveik og mátti sko ekki tæpar standa með greiningu....þá væri ég ekki hér.......

jæja þá er ég búin með trúnó..........vonandi nenntuð þið að lesa þetta.....ég bara var að tjá mig...er svo ánægð með lífið.....þrátt fyrir kreppuna!  Enda er það annað sem skiptir meira máli en peningar.......það er sko eitt af þvi sem maður veit fyrir víst!!!

 hafið það gott elskurnar mínar

kveðja

Helga Hrönn


I´m back.......

................jæja loksins er ég komin í samband.....tölvan fékk vírus og hrundi Devil Tók rúmlega 3vikur en hún er komin í lag núna.....7,9,13 Whistling

Ég nenni nú ekki að rifja þessa vikur upp en hér kemur það helsta:

27. sept :  Var gæsunin hennar Sibbu minnar.  Allt gekk vel og var mjög gaman.  Bendi ykkur á að lesa hennar blogg fyrir nánari upplýsingar.....heheheehe!  Alla vega tókst mjög vel og allar skemmtu sér konunglega. 

Um mánaðamótin fórum við í 3víddar sónar.  Mér og Tobba fannst mjög gaman en Aron Inga fannst þetta sko ekki spennandi.  Eiginlega fannst honum þetta "ógeðslegt".........ég spjallaði við hann eftir á og útskýri fyrir honum að barnið liti ekki svona út og væri mikið fallegra þegar það kemur í heiminn.....OK hann sáttur við það.  Hann er svo fyndinn þessi elska InLove.  Bumbukrílið var sko ekki að sýna sig of mikið.........ég var hrist ...eins og ég veit ekki hvað....ómæ hef bara ekki upplifað annað eins.......en NEI krílið bara svaf og neitaði að sýna sig meira en það gerði.  En það náðust ágætar myndir, sérstaklega vanga og andlits en ekki meira en það.  Þó svo að ég hafi orðið fyrir smá vonbrigðum með hvað ég fékk fáar (færri en aðrar sem ég veit um) myndir þá varð ég mun rólegri eftir að hafa farið....núna veit ég að það er allt ok.  

Um helgina flutti Aron Ingi í forstofuherbergið......eða réttar sagt herbergið fyrir stóra stráka.  Hann valdi sér lit á herbergið og varð blár fyrir valinu....ég málaði því einn vegg bláan og kemur það mjög vel út.  Hann fær líka að hafa playstation-tölvuna hjá sér.  Alla vega í bili.....ég hef ekki verið sátt við að leyfa það en hann óskaði eftir því og ákvað ég að leyfa það til þess að gera flutninginn spennandi.......svo verður nú ekki gaman að hafa mun yngri krakka yfir sér í henni....fiktandi í öllu og með brjá..... læti....Grin Hann er mjög sáttur við þetta......það er einna helst ég sem er pínu stressuð .....finnst hann farinn langt í burtu frá mér......æi maður getur verið svo klikkaður....en þetta er nú "litla" barnið mitt......en samt orðinn svo stór!!!

Á morgun er það vaxtarsónar.....var honum flýtt um 2 vikur.  Ástæðan er mikil þreyta hjá mér, blóðþrýstingur í hærra lagi í síðustu skoðun og bjúg myndun.. (en kannski er það nú bara eðlilegt).  Ég er rosalega fegin að fá að fara fyrr.  Það á að skoða það á morgun hvort að ég þurfi að minnka við mig vinnuna......er alveg hrikalega þreytt og hef bara aldrei upplifað annað eins (hjúkk).  Hef verið með sykursýki í 20. ár ( á morgun) og hefur sykurinn oft verið mjög hár....en aldrei hef ég upplifað svona mikla þreytu áður.......kannski er þetta bara aldurinn.....en sjáum til hvað doksi segir á morgun. 

Jæja ég nenni ekki að blogga meira í dag.....hafið það gott, gaman að geta fylgst með ykkur aftur og munið að kvitta.

Æ em át

kveðja

Helga Hrönn

 


Skoðanakönnun

...jæja ákvað að skella inn könnun.  Hún er hérna hægra megin fyrir neðan dagatalið.......góða skemmtun :)

Klukkuð

Já ég var klukkuð af Jórunni ( fregn) um daginn og best að svara því núna:

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina

  • Fiskiðjan - Skagfirðingur 
  • Iðja - dagvistun
  • Heimili fyrir fötluð börn 
  • Þroskaþjálfi í sérdeil

 

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á
  • Ghost

  • Bridget Jones Diary

  • Dirty dancing

  • Footlose .......dettur bara gamla myndir í hug eins og er

 

Fjórir staðir sem ég hef búið á

  • Reykjavík

  • Stykkishólmur

  • Sauðárkrókur

  • Hafnarfjörður

 

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar

  • What about Brian

  • One tree hill

  • Grey´s anatomy

  • Gossip girl

 

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum

  • Sauðárkrókur
  • Ísafjörður
  • Neskaupstaður
  • Laugavatn

  Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg

  • mbl.is
  • barnaland.is
  • goggle.is
  • ....man ekki fleiri
     

Fernt sem ég held uppá matarkyns

  • Kjúklingur
  • Lambakjöt
  • Fiskréttir ....eingöngu úr ýsu:) 
  • folaldapottréttur a la mömmu


  Fjórar bækur sem ég hef lesið oft
  • Barn að eilífu..........fyrst bara lesið, seinna skiptið lesið með gagnrýnis augum og hugsun.
  • Fötlunarfræði
  • .......man ekki eftir fleirum , en ég les mikið 

Fjórir bloggarar sem ég klukka  

  • Sibbulína
  •  E.R.....
  • Angelboy
  • henngust

Tíminn líður hratt.....

......á gervihnattaöldGrin

Já maður er alltaf minntur reglulega á það hvað tíminn líður hratt!  Alla vega einu sinni á ári og er sá dagur í dag.............já mins á afmæli.  Klukkan 9.20 á sjúkrahúsi á Akranesi kom ég í heiminn InLove Þriðja barn foreldra minna, einn strákur og tvær stelpur, og var ég yngst í 12 ár en þá kom einn lítill gutti til viðbótar Heart

Annars eru það tveir dagar í viðbót sem minna mann líka á það hvað tíminn líður, þeir eru afmæli hans Tobba mins og svo audda hans Arons Inga.  Tobbi var bara 15 ára þegar við byrjuðum saman og núna er hann 31 árs.........já vá tíminn líður hratt.  Aron Ingi er orðinn 6 ára og byrjaður í skóla.........finnst eins og hann hafi fæðst í gær InLove

Heyrði í mömmu áðan og barst afmælispakki í tal.  Ég vil nú ekkert í gjöf , finnst þetta ekkert merkilegt afmæli ........en þá sagði mamma; Nei , en þetta minnir mig samt á það hvað maður er orðin gamall og tíminn líður hratt...........hehehehe......sennilega glíma margir við þessar tilfinningar í hvert skipti sem að börnin eiga afmæli.  Og auðvitað rifjar maður upp þá stund þegar börnin komu í heiminn.......maður man það eins og það hefði gerst í gær!

Verð heima ef einhver vill kíkja í kaffi............Takk kærlega fyrir allar kveðjurnar og smsin.......gott að eiga góða aðHeart

Vonandi eigið þið öll góðan dag og njótið hans í botn........veit að ég ætla að gera það.

kveðja

Helga Hrönn


Fyrsti skóladagurinn

fyrsti_skoladagurinn_fleira_014_652495.jpgJá Aron Ingi byrjaði í skólanum í dag.  Hann var nú bara slakur í morgun, hefði sko þegið að sofa lengur Sleeping og hann tók sko lífinu með ró.  Svei mér þá , held að það sé betra heldur en að vera eitthvað að stressa sig............alla vega hefur hann það ekki frá mér Crying Er frekar stressuð týpa.  

Audda kíkti ég á símann minn í vinnunni og aldrei var hringt frá skólanum og gekk allt vel hjá honum......reyndar eitt sem ég má til með að segja ykkur frá vegna þess að ég varð svo hrikalega hneyksluð............;

Ég fór og sótti Aron Inga um kl.13.10 og þá tók ég eftir því að hann er eini strákurinn sem situr bara hjá stelpum.  Þeir eru um 5-6 í bekknum.  Var ég mjög hissa vegna þess að ég mundi sjálf aldrei raða svona í bekkinn eða mundi hafa áhrif á sætaröðina hjá öllum.  Ákvað ég því að tala við kennarann og sagði ég henni að ég mundi vilja að hann sæti meira hjá strákunum þar sem að hann þekkir engan í hverfinu né í skólanum þá væri tilvalið að reyna að koma honum í samband við strákana í bekknum ( veit að einn á heima nálægt).  Tók hún ágætlega í það, sagði að þetta væri bara svona á meðan hún kynnist þeim og hún mundi skoða málið.  

Svo sagði hún við mig að hann Aron Ingi kæmi of seint inn úr frímínútum og það gengi ekki.  WHAT!!!!!!! Já hann heyrir ekki í bjöllunni, fer á svæði þar sem hann á ekki að vera og þegar hann sæi aðra krakka fara inn á hann að vita að það er búið að hringja...........!!!! Já hana nú!!!!  Vá hvað ég varð hissa, spurði hana hvort að það væru ekki skólaliðar þarna til að fylgjast með þeim?? Jú, Jú en þeir geta nú ekki fylgst með öllu.....nei sagðist skilja það en ég hafi nú búist við því að þeir mundu einblína EXTRA á 6 ára krakkana svona fyrst um sinn , alla vega væri lögð áhersla á það í skólanum sem ég vinn í.  Svo komum helling af útskýringum á því hvar best væri að vera úti og hvar hann mætti ekki vera og svo sagði hún ; Aron Ingi, núna ætlar mamma að labba með þér og sína þér hvar þú átt að leika í frímínútunum.  Nei ég hélt nú ekki, hefði ekki tíma í það vegna þess að ég þyrfti að fara aftur í vinnuna........þá sagði hún ; við förum bara betur yfir þetta á morgun.

Ok er ég ein um að skilja þetta ekki?  Geri ég of miklar kröfur t.d. varðandi sætamálin?

Hvernig á barn sem veit ekki hvað frímínútur eru að vita hvenær þær eru búnar?  

Barn sem aldrei hefur þurft að fara eftir skólabjöllu að vita að það sé skólabjallan að hringja?

Hvernig á það að vita að frímínúturnar séu búnar þegar bjalla hringir?

Barn sem aldrei hefur leikið sér á skólalóðinni að vita hvað langt það má fara og hvar það á að leika?  

Til hvers í ósköpunum var ég að sitja skilafund milli leikskóla og grunnskóla ef upplýsingarnar skila sér ekki?  

Hvar er það í dæminu að mæta þörfum barnsins?  

Og ef ég væri kennari mundi ég aldrei nokkurn tímann raða svona í bekkinn eða "leyfa" þeim að grúppa sig svona.  Aron Ingi þekkir engan í bekknum né í öllum skólanum og því er afar mikilvægt að kennarar hafi áhrif á félagsleg samskipti í bekknum.  Það er eitt af hlutverkum kennarans að stuðla að félagslegum samskiptum og þannig að hafa áhrif á félagsfærni einstaklinga.  Aron Ingi hefur ekki átt erfitt með að eignast vini en það að hann sitji bara hjá stelpum og sé eini strákurinn sem gerir það .........tel ég auka líkurnar á stríðni sem getur endað í einelti. 

Vá hvað ég varð að pústa............hrikalega svekkt yfir þessu öllu saman, en ætla að reyna að láta þetta ekki hafa áhrif á samskipti mín við kennarann en hann mun samt fá að vita það að ég læt skoðun mína í ljós og mun fylgjast mjög vel með öllum hans málum......enda er hann mitt barn .....ef ég hugsa ekki um hans hagsmuni hver gerir það þá????? ( fyrir utan foreldra..:)

Já það er bara að vona að við séum ekki að fara í sama pakkann og fyrst í leikskólanum.......ætti kannski að benda kennaranum á að tala við þann leikskólakennara......hehehehe........hann veit sko að ég gef mig ekki!!!!!! Nei, nei þetta verður allt í lagi..........bara vera duglegur að tala við kennarann, vera kurteis og sanngjarn....en foreldra þekkja börnin sín best og því er mikilvægt að hlusta á þá.

En kúturinn minn var alsæll og fannst gaman og mun ég ekki leyfa honum að heyra óánægju mína.  Ætla að leyfa honum að njóta sín sem nemanda.........

Meðgangan gengur fínt.  En er frekar þreytt og er samt að hressast.  Sykursýkislæknirinn minn er alveg alsæl með mig og finnst ég sko vel með á nótunum og vita hvað ég er að gera og hvað ég á að gera.........og fljót að ná dælunni!  Bara gaman að fá hrós.  Er komin 23 vikur og 1 d ........Búin að panta í þrívíddarsónar og förum við ÖLL þann 1.10.  

Jæja verið dugleg að kvitta og ekki hika við að segja ykkar skoðun á þessu "kennaramáli".......hvað finnst ykkur?

kveðja

Helga Hrönn 


Þvílíkir fávitar

Greinilega ekki í lagi þarna, hverjum dettur þetta í hug..?  Hálfvitaskapur.  Fyrir utan það hvað eru strákar um tvítugt að gera á skólalóð?......... Ógeðslegt og hættulegt!

Hrikalega hneyksluð....vonandi fá þeir MJÖG háa sekt, sviptingu réttinda og jailtime......og núna er að nota ákvæðið um að yfirtaka bifreiðina......ekki spurning!!!!


mbl.is Ofsaakstur á skólalóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrikalega stolt af STRÁKUNUM OKKAR

Já glæsilegur árangur hjá þeim Grin  Er mjög sátt við hvernig þeir hafa staðið sig og satt best að segja átti ég aldrei von á því að þeir myndu enda á verðlaunapallinum............Geggjað hjá þeim.......................Eru búnir að margsanna það að þeir eru BESTIR....þrátt fyrir að hafa tapað fyrir frökkum þá eru þeir bestir.

 


mbl.is Töpuðum ekki gullinu heldur unnum silfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjúkk............

.........hann slapp vel Heart  Pabbi var í þessari gröfu, kanturinn gaf sig og grafan rann niður og á hliðina. 

Þetta er lengst upp í fjalli og því fór þetta mjög vel, hefði getað farið verr.........hjúkk, hjúkk HeartInLoveHeart

Allir sluppu vel, pabbi og líka grafan.........Grin  Aðalatriðið er að engin slasist!

 


mbl.is Grafa fór á hliðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband