alltaf í vandræðum með fyrirsögnina.......:(

Jæja best að reyna að blogga. 

Ég er byrjuð í mónitor 2svar í viku og er ég búin að fara í 3 skipti.  Fór í gær í mónitor og skoðun.  Var um það bil 30 mín í mónitor, ljósmæðurnar byrjuð eitthvað að "pískra" og heyrði ég bara að þær ætluðu ekki að samþykkja ritið og þá spurði ég þær hvort að það væri ekki allt í góðu?  Sögðust þær ekki ætla að samþykkja ritið , heldur ætti ég að sýna lækninum það og hann mundi samþykkja það ef það væri í lagi.  Vá hjartað missti úr nokkur slög.....jú ég var búin að finna mjög miklar hreyfingar og því áttaði ég mig ekki á því hvað væri eiginlega í gangi.  Ég fer því niður á biðstofuna þar og þurfi að bíða.........frekar óþægilegt að bíða og vita ekki neitt.  En loksins komst ég að og kíkti læknirinn á ritið og gat ekki samþykkt það, vildi að ég færi aftur í mónitor.........ó mæ.....þar misst hjartað fleiri slög úr Blush En skoðunin gekk annars vel.  Ég fór aftur í mónitor og þá kom ritið vel út.....hjúkk, hjúkk....þetta tók sko á, verð alveg að viðurkenna það.  Það var ekki hægt að samþykkja fyrra ritið vegna þess að hjartsláttur jókst ekki nógu mikið þegar barnið hreyfði sig.....en hitt kom vel út og því fengum við að fara heim InLove  Fer svo aftur á föstudaginn........nóg að gera en sko pottþétt þess virði og sko engin kvöð!  Á þriðjudaginn í næstu viku er svo vaxtarsónar og skoðun ......þá fæ ég endanlega dagsetningu....vívíví það er bara alveg að koma að því að við fáum krílið okkar Heart Læt ykkur vita þegar dagsetningin er komin!  

Af Aron Inga er allt gott að frétta, gengur alveg súpervel í skólanum.  Reyndar er hann farinn að koma svo mikið upp í til okkar á nóttinni.  Skil það ekki vegna þess að hann hefur sofið svo vel allar (nánast) nætur síðan hann var nokkra mánaða og hefur ekki komið svona mikið upp í eins og núna....held að hann sé búinn að koma upp í alla vega 5 daga í röð...frekar óvanalegt....en vonandi er þetta bara tímabundið og ekkert annað að hrjá hann.....alla vega segir hann að það sé allt í lagi.  Svo er bara að muna að huga vel að honum þegar krílið kemur og leyfa honum að taka mikinn þátt í öllu.  

Jæja núna er maður aðeins farinn að finna fyrir kreppunni.....reyndar ekki fyrr en um næstu mánaðamót....málið er að það er komið yfirvinnubann hjá kallinum og munar það sko alveg helling á útborgun, sennilega um 100.000 kr.  Hann mun því fá meira að vera í fæðingarorlofi.......en þetta reddast alltaf .....eða er það ekki?  Alla vega ætla ég ekki að hafa of miklar áhyggjur núna , heldur tökum við á þessu þegar það þarf.  Svo er hann að hugsa um að taka að sér smá "aukaverkefni" í skúrinn ......vitið af honum :)

jæja hvað á maður að bulla meira?  Bara allt að verða tilbúið, búin að skreyta, kaupa allar jólagjafir nema Arons Inga, búin að skrifa jólakortin....bara eftir að skrifa prinsessuna/prinsinn undir þegar að því kemur, búin að kaupa frímerkin............ætla að taka "jólahreingerninguna" seinna....enda eitthvað sem fer ekki neitt.  Var að spá í að baka en ætla að sleppa því, alla vega eins og er, hver veit kannski ég verði í stuði þegar ég er orðin léttari :)  

Halldór frænka kom í heimsókn í dag , mikið rosalega er gaman að fá góða vin í heimsókn.....gæðastundir þegar vinir manns kíkja við eða þegar maður hittir þá.....en því miður hittir maður þá ekki nógu oft.  Á morgun hittumst við svo , ég , Sibba og Arndís....hlakka ýkt mikið til.

jæja veit ekkert hvað ég á að bulla meira.....þangað til næst

kveðja

Helga Hrönn 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er ekki hissa að þú hafið orðið pínu stressuð, ég hefði sko orðið það líka! Gott að allt leit vel út og hvað allt gengur vel hjá þér, enda kjarnakona á ferð! Jeminn hvað það er stutt í krílið og maður er orðinn svo spenntur, ég var svo viss um að það kæmi 11.des en það er aldrei að vita, vonandi bara sem fyrst. Hafið það gott og farðu vel með þig Helga mín!

Kveðja, Ditta syst.

Ditta syst (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 20:01

2 Smámynd: Sigurbjörg Guðleif

Hæ elskan. Já eins og þú veist núna þá er margt að gerast á heimilinu mínu:( gubbupest og eitthvað sem engin veit í háls og hendi.... það er ekki að ganga vel hjá mér að vera gift hehehehe allta eitthvað að hrjá mig.

Mér finnst mjög ólíklegt að ég komist á morgun til Arndísar, Helga Jóna er svo veik. En ég læt þig vita.

Knús á þig elskan.

Sibba

Sigurbjörg Guðleif, 3.12.2008 kl. 23:18

3 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 6.12.2008 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband