Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

Tíminn líður......

.......hratt!  Já það er sko eitt af því sem er alveg pottþétt.......tíminn líður og oftast mjög hratt Wink 

Meðgangan gengur fínt.  Komin 19 vikur og 1 d, ótrúlegt en satt þá flýgur tíminn áfram.  Held reyndar að það hægist eitthvað á honum þegar nær dregur að bumbukrílið láti sjá sig InLove 

Búið að vera mikið að gera í læknisheimsóknum.  Fór tvisvar í síðustu viku og viti menn gekk bara vel að finna göngudeild sykursjúkra í seinna skiptið og að komast út af spítalanum.....hehehhehehe.  Er búin að fara til læknis eða einhverju sem tengist sykursýkinni í hverri viku síðan síðustu vikuna í maí.......svaka stuð.  Held svei mér þá að ég taki þessa daga saman og fái þá skrifaða á vottorð, skemmir doldið mikið sumarfríið.  Fer í mæðraskoðun á morgun, vonandi gengur það vel.  Ég er frekar stressuð í hvert skipti sem ég fer, held að ég sé smeik við að vera lögð inn og einnig var maður mikið hræddur á síðustu meðgöngu.....þá sérstaklega af einum lækni og því er maður soldið "brenndur" af því.  Jiiiiii ég man hvað það var hrikalega leiðinlegt að liggja inni og vonandi þarf ég ekki að ligga mikið núna.  Svo eru aðstæður öðruvísi núna , þ.e.a.s. á einn gutta sem þarf að hugsa um.  Við höfum engar ömmur né afa hér til að leita til og því er þetta doldið mikið flókið.......æi er eitthvað stressuð yfir þessu.......nóg í bil um þetta.

Fer í 20 vikna sónar í næstu viku.  Hlakka ég til en kvíði því líka, þetta er fósturgreining og því er mikilvægt að hafa það í huga þegar maður fer..........ekki bara að fá myndir.  En sem betur fer er það oftast þannig að börnin eru heilbrigð og því æðisleg upplifun fyrir foreldra að fara í þennan sónar.

Jæja nú styttist í að Tobbi minn fari í frí.........vvvvvííííííííííí hvað ég hlakka til.  Verð að viðurkenna það að mér hefur stundum leiðst í fríinu ( eftir að Tobbi fór að vinna aftur) .  Við ætlum að skreppa eitthvað smá en förum ekki hringinn eins og síðasta sumar............ætla að gera eitthvað annað fyrir peninginn minn en að styrkja olíufélögin og ríkið.

Já á ég ekki að minnast aðeins á dæluna?  Jú það gengur bara vel með hana.  Einbeiti mér bara að því að kunna vel á einfaldasta prógramið ( sem er ekkert mál að læra á) og svo þegar ég er búin að eiga mun ég prófa mig áfram með hana.  Sykurinn hefur smá verið að stríða mér undanfarið , sennilega tengt meðgöngunni....þ.e.a.s. þarf mjög líklega meira insúlín eftir því sem lengra dregur.  Þegar ég var að fá dæluna miklaði ég þvílíkt fyrir mér að þurfa að hafa eitthvað drasl "hangandi" utan á mér.....þjónustuaðili sagði mér að konur væru oft með dæluna í brjóstahaldaranum.......já nei takk, ekki fyrir mig .  Svo um daginn var ég frekar þreytt á mittisbeltinu sem ég keypti mér og skellti henni í brjóstahaldarann og viti menn hún er ennþá þar Grin svo þegar ég þreytist á því að sofa í honum þá gríp ég í beltið........! 

Í dag eru komnar 7.vikur síðan ég drap í Cool  Reyndar búin að finna doldið mikið fyrir löngun í dag og í gær.  Hitti Helenu og Nonna í gær og ég hreinlega beið eftir því að Helena færi út að reykja svo að ég gæti farið með til að finna lyktina.  Svo í dag skrapp ég að ná í Kristín Lilju , svo að hún og Aron Ingi gætu leikið saman, og audda kíkti ég inn en fór sko ekki fyrir en Gunna Magga gat farið með mér út og leyft mér að þefa ....ehehehehehe......ótrúlegt en satt finnst mér þetta slá á löngunina. 

jæja ég bablaði aðeins meira en ég ætlaði mér.

Verið nú dugleg að kommenta og þið sem eruð með blogg ; verið dugleg að blogga Smile

kveðja

Helga Hrönn

 

 


Árið 2010 í ríki gagnagrunnanna.......

SÍMASTÚLKA: Pizza plúúúús!
Viðskiptavinur: Halló, ég ætla að panta pizzu hjá ykkur...
SÍMASTÚLKA: Sjálfsagt, ég þarf að fá kennitöluna þína.
VIÐSKIPTAVINUR: Kennitöluna, já hún er 180869-4859.
SÍMASTÚLKA: Já, Jón Jónsson, heimilisfang Fálkagata 17, símanúmer 5809957. Þú vinnur í
herbergi nr. 23 hjá Landsvirkjun og GSM númerið þitt er 879-4138. Úr hvaða síma hringirðu?
VIÐSKIPTAVINUR: Ha, ég? Heimasímanum. Hvar náðirðu í allar þessar upplýsingar?
SÍMASTÚLKA: Við erum tengd við netið.
VIÐSKIPTAVINUR: (andvarpar) Já, ég ætla að fá tvær lúxuspizzur með kjötáleggi...
SÍMASTÚLKA: Ég held þú ættir að sleppa því, Jón.
VIÐSKIPTAVINUR: Hvað meinarðu?
SÍMASTÚLKA: Jón, í sjúkraskýrslunni þinni stendur að þú hafir mjög háan blóðþrýsting og allof hátt kólesteról. Líftryggingafélagið þitt leyfir þér ekki að borða svona óhollan mat.
VIÐSKIPTAVINUR: Hverju mælirðu þá með?
SÍMASTÚLKA: Þú ættir að prófa fituskertu sojabaunapizzuna okkar með jógúrtsósunni. Ég er viss um að þér þykir hún góð.
VIÐSKIPTAVINUR: Hvernig dettur þér í hug að ég mundi vilja eitthvað svoleiðis?
SÍMASTÚLKA: Nú, þú tókst "Gæðauppskriftir með sojabaunum" á bókasafninu í síðustu viku. Þess vegna stakk ég upp á þessu.
VIÐSKIPTAVINUR: Ókey, ókey. Sendu mér tvær í fjölskyldustærð. Hvað kostar þetta svo?
SÍMASTÚLKA: Það ætti að nægja þér, konunni og börnunum fjórum. Kostnaðurinn er 4.589 krónur.
VIÐSKIPTAVINUR: Ég ætlað að borga með kreditkortinu. Númerið er...
SÍMASTÚLKA: (grípur fram í) Því miður, en þú verður að borga út í hönd. Þú ert kominn yfir á kortinu.
VIÐSKIPTAVINUR: Ég hleyp þá bara í næsta hraðbanka með debetkortið og tek út pening áður en bílstjórinn ykkur kemur.
SÍMASTÚLKA: Það gengur ekki heldur. Þú er búinn með yfirdráttinn á tékkareikningnum.
VIÐSKIPTAVINUR: Jæja, jæja, sendu bara pizzurnar og ég hef peningana tilbúna. Hvað tekur það langan tíma?
SÍMASTÚLKA: Við erum aðeins í seinni kantinum, gæti verið um 45 mínútur. Ef þér liggur á gætirðu sótt þær um leið og þú nærð í peningana, en það er auðvitað frekar erfitt að flytja pizzur á mótorhjóli...
VIÐSKIPTAVINUR: Hvernig veistu að ég er á mótorhjóli?
SÍMASTÚLKA: Það stendur hérna að bíllinn hafi verið gerður upptækur vegna vangreiðslna á bílaláninu. En Hondan er fullgreidd svo ég gerði ráð fyrir að þú mundir koma á henni.
VIÐSKIPTAVINUR: @#%/$@&?#!
SÍMASTÚLKA: Gættu þín á orðalaginu, Jón. Þú er þegar búinn að fá á þig einn dóm fyrir að blóta í návist lögreglumanns, í júlí 2006.
VIÐSKIPTAVINUR: (orðlaus)
SÍMASTÚLKA: Var það eitthvað fleira?
VIÐSKIPTAVINUR: Nei, ekkert. Jú annars, hvað með þessa tvo lítra af kók sem fylgja frítt með pizzunum frá ykkur?
SÍMASTÚLKA: Því miður, Jón, en í smáa letrinu í auglýsingunni frá okkur stendur skýrum stöfum að við sendum ekki ókeypis gosdrykki til sykursjúkra.
It's Not Fair

Jæja þá er........

..........búið að tengja insúlíndæluna. 

Já mins mætti galvösk um 10.30 í morgun niður á landspítala Hringbraut, arkaði þar inn sko alveg viss á því hvar göngudeildin væri.  En nei ég bara fann hana ekki og á endanum fór ég í afgreiðsluna og spurði, kom þá í ljós að hún er flutt í Fossvoginn......hehehehe.......er langt síðan ? spurði ég......"já eitthvað um 3 ár"......Ok takk fyrir CryingBlush....og arkaði ég þvi aftur út í bíl Whistling      Sem betur fer mætti ég tímalega.....því var gefið í og keyrt í Fossvoginn og náði ég þangað á réttum tíma.............en þá var að finna deildina, hafði sko ekki hugmynd hvar hún væri né neitt annað á þessum spítala.  Ok ég fann afgreiðsluna fljótt og spurði þar frekar grömpí kellu hvar göngudeild sykursjúkra væri og svaraði hún að ég ætti bara að fara hjá bráðamóttökunni....og bla,bla.  Ég missti strax þráðinn þar sem ég vissi ekki hvar bráðamóttakan er ( hef aldrei komið þangað).  En já ég gekk af stað í rigningunni með allt heila dótið með mér og allt orðið velblautt.  Ok ég fann bráðamóttökuna slysalaust en þar stóð ég bara og hugsaði "hvað núna?" hvar er þessi and.......deild?".  Á endanum gafst ég upp og fór inn á bráðamóttökuna og spurði stelpunar þar og bentu þær mér á að fara í afgreiðsluna og fá þar leiðbeiningar.  Benti ég þeim þá á að ég hefði verið þar og var bent á að hún væri einhvers staðar hér.  Nú.....þær urðu pínu vandræðalegar en hringdu til að kanna þetta betur fyrir mig......og í ljós kom að ég átti að fara í gengum einar dyr þarna og upp stigann....Grin  Loksins fann ég þessa deild.  Ég hitti hjúkrunarfræðinginn og gekk mjög vel hjá henni, alveg frábær kona.  En svo vandaðist málið þegar ég þurfti að koma mér út úr þessari byggingu........jú ég fylgdi merkingum , í lyftunni var um tvo útganga að velja , á sitt hvorri hæðinni, prófaði báða en þegar lyftan opnaðist voru bara LANGIR gangar í báðar áttir og ekkert sagt hvert maður ætti að fara.  Gekk þetta svona í smá tíma en þá gafst ég upp og spurði starfsmann sem ég mætti og vísaði hún mér leiðina út.  Vííííiííí loksins komst ég út og í bílinn minn.........Smile....frelsi, frelsi.....mikið hrikalega er þetta óþægilegt.  Já það er spennandi að vita hvort að ég rati á fimmtudaginn....og hvort að ég komist út. 

Það hefur gengið vel með dæluna í þessa klukkutíma sem ég hef verið með hana og sykurinn nokkuð góður, reyndar fór hann frekar hátt eftir hádegismat en ég mun gefa mér meira insúlín í hádeginu á morgun.  Kvíður soldið fyrir nóttinni , en ég fór og keypti mér mittisbelti og ætla að prófa að sofa með það. 

Soldið langt myndband en ég er með svona dælu.  Bara svona til að Þið getið fengið smá innsýn og skilijið hvað ég er að tala um.  Veit líka að mínir nánustu vilja kíkja á þetta. 

 

Ég fór niður á kvennadeild í gær um 12.  Æi ég varð eitthvað smeik vegna þess að mér finnst ég ekki finna miklar hreyfingar.  Ákvað ég því bara að fara og láta hlusta.  Já það er allt í góðu með krílið okkar, góður hjartsláttur og alles.......vá hvað þetta tók á.......en betra að láta athuga þegar maður er eitthvað stressaður og hræddur. 

jæja ætla að láta þetta duga núna.........vonandi nennið þið að lesa allar þessar línur.

 Hafið það gott

kveðja

Helga Hrönn 

 


ekkihugmyndumhvaðþessifyrirsögnættiaðheita

........jæja takk kærlega fyrir síðustu bloggfærslu þ.e. skemmtileg umræða og margar skemmtilegar sögur og skoðanir.

Við erum búin að taka ákvörðun varðandi að vita kynið og það e rað fá ekki að vita það.  Við erum mikið búin að ræða málið og þetta er niðurstaðan.  Því verður maður bara að bíða fram í des......hehehehehe.........spennandi  Grin

Jæja þá er komin dagsetning á uppsetningu á dælu og er það fyrr en ég bjóst við.......Mæting 21. júli kl.10.30.....sem sagt á mánudaginn kemur....Crying pínu stressuð en líka tilhlökkun........en verð að passa mig á því að vera ekki með ofmiklar væntingar til græjunnar.....annars verð ég fyrir þvílíkum vonbrigðum.  

 

Jæja maður er búin að hafa það gott í sumarfríinu ........en ég er svo hrikalega þreytt alltaf og er sko orðin ÞREYTT á því.  Ég er alltaf þreytt og hef mig ekki í að gera neitt.  Man eftir því að ég var þreytt fyrstu 2-3 mán með Aron Inga en samt ekki nálægt því eins mikið og núna...........og komst ég mun fyrr yfir það.  Reyndar er ég að sofa illa, veit ekki hvers vegna, en er að vakna 4-8 sinnum á nóttinn.....ekki gaman.  Vonandi fer ég nú að komast yfir þetta og fer að taka þátt í lífinu aftur...hehehehe.  Reyndar kom einn dagur í síðustu viku þar sem ég var VELVAKANDI (hehehe) og þann dag ákvað ég að mála baðherbergið, byrjaði á því þann dag og kláraði það á einum sólarhring.  Síðan hef ég lítið gert Errm

Baðhergið fyrir:

ymislegt_007.jpg ymislegt_008.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 Eftir:

ymislegt_018.jpgymislegt_019.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

Bara nokkuð vel gert......hehehe....

Fór í mæðraskoðun í dag og gekk það bara vel.  Það er alveg merkilegt að alltaf þegar ég á að mæta á mælist sykurinn hár og mun hærri en alla hina dagana Blush en það sleppur.  Læknirinn var reyndar bara ánægður með statusinn á sykrinum og fannst hann ekki rokka mikið, ég hafði pínu áhyggjur af því.  Síðan ég fór í mæðraskoðun síðast eða fyrir 3 vikum þá finnst mér ég hafa blásið út og hafði áhyggjur yfir því að ég sjálf væri búin að stækka of mikið , get svarið það finnst ég vera að springa núna.......nóv - des ó mæ god Wink Já það er gerð krafa um það frá ákveðnum lækni að ég þyngist ekki um meira en 6-7 kg.......ég fékk vægt sjokk þegar hún sagði það fyrir 3 vikum.......mér gekk mjög vel þegar ég gekk með Aron Inga og hélt ég sykrinum mjög góðum en samt þyngdist ég um 9 kg.....hvernig í ósköpunum á ég að fara að því að þyngjast minna?  En kannski tekst það , hver veit?  Já ég var vigtuð fyrir þrem vikum og svo aftur núna og viti menn........ekki búin að þyngjast um gramm Grin segi nú bara geri aðrir betur...hehehehe.  Veit að ég er alltof þung og þvi er þessi krafa gerð.....eingöngu með mína heilsu í huga.  Svo verður sko tekið á því eftir þessa meðgöngu......Wink

jæja er ekki tilvalið að enda þennan "kvörtunarpistill" á smá kátrisyrpu..hehehe...........

ai

gullmolinn minn - kátur

 

 

 

 

 

 

 

 

ai

Já stuð að tannbursta sig..........oh hann er bara sætastur InLoveHeartCool

kveðja

Helga Hrönn


Ekki alveg að fylgjast með tímanum

............Ég ætlaði sko að blogg sérstaklega þegar ég væri búin að ná 1. mánuði reyklaus.......en gleymdi því þar sem að sá MERKISDAGUR var í gær Grin   Já þetta er fljótt að líða og verður þetta léttara og léttar.......hugsa mun minna um að reykja ......sem betur fer. 

Verð að viðurkenna það að mér finnst stundum hálfasnalegt að telja dagana sem ég hef verið hætt þar sem að ég hætti ekki fyrr en ég var gengi um 11-12 vikur..........en ég hætti og tel ég það fyrir öllu.  Betra fyrir barnið og audda mig líka......InLove 

Var að koma úr kennslu á dæluna og þar sem að ég var svo dugleg að lesa heima þá kunni ég nánast allt........já þetta er aðeins að skýrast fyrir mér og ég er að verða jákvæðari.  Svo er bara að bíða eftir því að hún verði sett upp Errm sennilega 2-3 vikur í það.

Langar að spyrja ykkur að einu, þá sérstaklega þeim sem hafa reynslu af þessu.  Hvað finnst ykkur um að kíkja í "pakkann"?  Ef þið hafið samanburðinn hvort finnst ykkur meira "spennandi"?  Endilega segið mér Halo  Var sko alveg á því að kíkja ekki .......eeeeennnnnnnnnnnn langar alveg hrikalega......er samt svo hrædd um að skemma "stemminguna" við fæðinguna.  Hvað finnst þér ?

jæja læt þetta nægja í bili

kveðja

Helga Hrönn 


Smá update.....

HeartJæja komin tími á smá update.

Á fimmtudaginn fórum við á Hólmavík.  Gunna Magga og co buðu okkur að koma , redduðu okkur gistinu og alles.  Bara næs og var lífið tekið með ró.  Skruppum á Ísafjörð á laugardaginn, fórum og kíktum á Kolbrúnu Lilju ( hennar Helenu) ....algjört rassgat Grin Skruppum svo í heimsókn til vinafólks okkar.  Amma Gunnu Möggu bauð okkur í mat og audda var skellt sér þangað og bragðaðist kjúlli svaka vel.  Svo var keyrt aftur á Hólmavík og komum við þangað um 23.30.  Veðrið var frábært og algjör synd að eyða svona miklum tíma i bíl en það var þess virði.  Þetta var eini dagurinn sem var virkilega góður.....hina dagana var skýjað en hlýtt. 

Áður en við fórum á Hólmavík komum við við á leikskólanum hans Arons Inga til þess að kveðja alla þar.......Já "litli" strákurinn minn er hættur á leikskóla......næsta haust teku grunskólinn við Blush Verð að viðurkenna það að ég kvíði mikið fyrir því.......en hafa ekki allir gengið í gegnum það? 

Í dag fór ég og náði í insúlíndæluna....já sem sagt ekki "kannski" lengur með hana...heldur er ég að fara að fá hana.  Sennilega ekki fyrr en í lok mán eða í byrjun ágúst.  En ég hef nóg að gera þar sem ég þarf að lesa mjög þykka bók , fara í kennslu og hitta fleiri lækna.  Sem sagt nóg að gera.......Undecided  Það er alveg ótrúlegt með þessa heilbrigðisþjónustu ........Ef einhver fer í frí þá kemur engin í staðinn......þjónustan er eftir þeirra höfði en þjónustuþeginn þarf að fórna öllu sínu.  Sem dæmi ......ég er í sumarfríi en get lítið ráðstafað því vegna þess að ég gæti átt von á því að vera kölluð inn þegar þeim hentar.  Alveg pottþétt að þessir dagar fara í læknisvottorð......!  Reyndar neitaði ég í dag að eyða viku í ágúst í læknastúss þar sem að Tobbi tekur frí þá í tvær vikur og ætlum við að reyna að gera eitthvað annað en "hanga " hér heima. Það á sem sagt að REYNA að redda því.  

Já ég veit að ég valdi það að verða ólétt en ég borga mína skatta eins og flest allir og þvi finnst mér að þjónustan eigi að vera sú sama allan ársinshring ....ekki þessar sparnaðaraðgerðir á sumrin.  

Jæja bumban heldur áfram að stækka.........skemmtileg stækkun núna....hehehehe!  Hef verið að finna fyrir ógleði, mikilli bílveiki og svo er ég frekar þreytt......en þetta er allt að koma og sko þess virði InLove  Komin rúmlega 16 vikur.....Heart

Reykleysið gengur vel og kemur mér það á óvart hvað þetta er létt .......en audda koma tímar þar sem að ég hugsa mikið um sígó en þeim fer sko fækkandi .........sem betur fer. 

jæja læt þetta nægja í bili........verið nú dugleg að kvitta elskurnar mínar.

kveðja

Helga Hrönn

 


Fyrir 55 árum......

..........fæddist lítil stúlka.  Já hún mútta mín er 55 ára í dag.  Innilega til hamingju með það elsku mamma......vonandi átturðu góðan dag Grin 

kveðja

Helga, strákarnir og bumbukrílið


Loksins....loksins....

......komin í sumarfrí.  Ég vann á mánudaginn og svo bara komin í frí....verð í fríi til 15. ágúst. 

Reyndar fer mikill tími í læknisheimsóknir ...eiginlega of mikill......en svona er það.  Ég fór í síðustu viku , aftur í gær.....svo á ég að mæta 15. júlí, 29.júlí og 6. ágúst. 

Sennilega þarf ég að mæta mikið meira í lok júlí þar sem að ég á sennilega að fá insúlíndæluna.....Woundering.  Kynnti mér hana aðeins í gær og svei mér þá veit bara ekki hvað mér finnst um hana Undecided Jú hún er víst algjör bylting en ég mikla svo fyrir mér að "flækjast" með hana utan á mér.  Ég geng aldrei með belti, ekki í buxum með vasa ..svo hvað á ég að gera við hana?  Æi þetta eru bara vangaveltur vonandi er þetta algjört æði og ég verða svaka ánægð með hana. 

Ef þú hefur einhverja skoðun á dælunni endilega kommentaðu um það. 

jæja læt þetta nægja í bili, hafið það gott öll sömul

kveðja

Helga Hrönn


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband