Draumur....

Rósa mágkona sendi mér sms í dag og mátti ég til með að leyfa ykkur að lesa það, finnst það svo sætt :) :

"Dreymdi þig í nótt.  Þú hringdir og sagðir að þetta væri allt að koma hjá þér og ljósmóðirin sagði að þetta væri stelpa, en þú héldir að þetta væri strákur. 

Ein orðin pínu spennt, knús í hús (Rósa)"

já þá er bara að bíða og sjá hvort að ég hafi rétt fyrir mér í draumnum eða ljósmóðirin InLove

Annars er allt gott að frétta, skoðun næst þann 16. des og vonandi fæ ég dagsetningu þá......verð að viðurkenna það að ég er að verða doldið óþolinmóð.......langar að fara að fá krílið í fangið Heart

kveðja

Helga


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús knús í hús og ljúfar yndislegar kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 13.12.2008 kl. 19:39

2 identicon

Já það eru sko fleiri orðnir spenntir  hvort það komi strákur eða stelpa! Get ekki spáð um það núna var svo viss fyrst að það kæmi stelpa en svo er ég ekki eins viss núna, en það kemur fljótlega í ljós. Gangi þér vel og hafið það gott.

Kveðja, Ditta syst.

Ditta systir (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 14:36

3 Smámynd: Sigurbjörg Guðleif

Hæ elskan ég er sko ekki búin að gleyma þér. Hugsa til þín á hverjum degi. Vona að allt gangi vel elskán mín.

Knús þín Sibba

P.S Ég hitti Júllu í gær hún bað kærlega að heilsa þér.

Sigurbjörg Guðleif, 15.12.2008 kl. 20:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband